Fotbolti.net
18.01.11 - 08:00
Hafliði Breiðfjörð

Hjörtur Logi Valgarðsson í IFK Gautaborg (Staðfest)

Hjörtur Logi er hættur hjá FH og leikur í Svíþjóð næstu árin.

Hjörtur Logi er hættur hjá FH og leikur í Svíþjóð næstu árin.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hjörtur Logi Valgarðsson er genginn í raðir sænska félagsins IFK Gautaborgar frá bikarmeisturum FH og hefur skrifað undir fjögurra ára samning við félagið.
Hjörtur Logi var samningsbundinn FH út þetta ár en sænska félagið kaupir hann. Hann er þegar kominn út til félagsins og hefur æfingar í dag.

Hann er 22 ára gamall og hefur allan sinn feril leikið með FH í vinstri bakvarðarstöðunni.

Hann spilaði 78 leiki í deild og bikar með FH og skoraði í þeim fjögur mörk.

Hann á að baki einn leik með A-landsliði Íslands sem var gegn Færeyjum í Kórnum árið 2008.

Þá hefur hann leikið 10 leikii með U21 árs landsliðinu vinsæla sem hefur tryggt sér sæti á Evrópumótinu í Danmörku næsta sumar.

Hjörtur Logi er fjórði Íslendingurinn hjá IFK Gautaborg. Fyrir eru þar þeir Hjálmar Jónsson, Ragnar Sigurðsson og Theódór Elmar Bjarnason.

Heimild: Vefur IFK Gautaborgar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.