18.01.11 - 17:06
Magnús Már Einarsson
Jay Emmanuel-Thomas til Cardiff (Staðfest)

Emmanuel-Thomas (í miðjunni).

Mynd: Getty Images

Emmanuel-Thomas (í miðjunni).

Mynd: Getty Images
Cardiff City hefur fengið Jay Emmanuel-Thomas á láni frá Arsenal út þetta tímabil.
Þessi 22 ára gamli leikmaður getur leikið bæði frammi sem og á kantinum.
Í vetur hefur Emmanuel-Thomas skorað tíu mörk í níu varaliðsleikjum en hann hefur þrátt fyrir það einungis leikið tvo leiki með aðalliðinu.
Cardiff fékk einnig framherjann Jon Parkin frá Preston á dögunum en fyrir er liðið með framherjana Craig Bellamy, Jay Bothroyd og Michael Chopra.
Cardiff er sem stendur í þriðja sætinu í Championship deildinni en liðið er tveimur stigum á eftir Swansea í öðru sætinu.

Heimild: BBC