Fotbolti.net
18.01.11 - 17:29
Hafliði Breiðfjörð

Eyjólfur Héðinsson til SønderjyskE (Staðfest)

Eyjólfur á æfingu með íslenska landsliðinu.

Eyjólfur á æfingu með íslenska landsliðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Eyjólfur Héðinsson er genginn í raðir danska félagisns SønderjyskE frá GAIS í Svíþjóð en þetta var staðfest í dönskum fjölmiðlum í dag. Hann er þriðji Íslendingurinn í herbúðum félagsins.
Eyjólfur var samningslaus frá GAIS og SønderjyskE var að leita að miðjumanni eftir að hafa selt Rasmus Hansen til Randers.

Hann er uppalinn hjá ÍR en spilaði með Fylki í fjögur ár áður en hann var seldur til Svíþjóðar eftir tímabilið 2006. Hann spilaði í fjögur ár með GAIS en gengur nú í raðir danska félagsins SønderjyskE.

Hann semur við SønderjyskE til sumarsins 2013 og ljóst að miðjan hjá liðinu verður íslensk næsta sumar því Ólafur Ingi Skúlason er þar fyrir og hefur verið að standa sig frábærlega. Auk þeirra er Arnar Darri Pétursson markvörður U21 árs landsliðs Íslands hjá félaginu.

,,Eyjólfur Héðinsson er góður sendingamaður og duglegur á boltanum. Hann er með gott hlaupaþol og er mjög orkumikill. Hann er sterkur í loftinu og er sú gerð af leikmanni sem kann vel við að staðsetja sig í holunni til að klára færin,\" sagði Ole Nielsen íþróttastjóri SønderjyskE.

Heimild: Bold.dk

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.