18.01.11 - 17:46
Magnús Már Einarsson
Darren Bent til Aston Villa (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur gengið frá kaupunum á Darren Bent framherja Sunderland.
Bent er dýrasti leikmaðurinn í sögu Aston Villa en talið er að félagið borgi 18 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Bent skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning en hann gæti leikið sinn fyrsta leik þegar liðið mætir Manchester City á laugardag.
,,Aston Villa er öflugt fótboltafélag og um leið og ég vissi að þeir höfðu áhuga á mér þá vildi ég koma hingað,\" sagði Bent.
,,Stærð og saga félagsins eru stór ástæða fyrir því að ég kom hingað.\"
Bent, sem er 26 ára, skoraði 32 mörk í 58 leikjum hjá Sunderland en hann kom til félagsins frá Tottenham sumarið 2009.

Heimild: Heimasíða Aston Villa