18.02.11 - 11:24
Magnús Már Einarsson
Hallgrímur Mar í KA (Staðfest)

Hallgrímur í leik með KA.

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Hallgrímur í leik með KA.

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
KA hefur fengið kantmanninn Hallgrím Mar Steingrímsson til liðs við sig frá Völsungi.
Hallgrmur Mar er uppalinn hjá Völsungi en hann lék með KA sumarið 2009 og fyrri hluta tímabilsins í fyrra áður en hann fór aftur heim á Húsavík.

Í vetur hefur Hallgrímur æft með KA og leikið með liðinu í Soccerademótinu og nú er ljóst að hann verður með Akureyringum í sumar.
,,Ég er gríðarlega ánægður að hafa fengið Hallgrím, hann er búinn að vera frábær í Soccerademótinu og ég lagði mikla áherslu að fá hann yfir,\" sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfari KA í samtali við Fótbolta.net í dag.
Guðmundur Óli, eldri bróðir Hallgríms, leikur með KA en Hrannar Björn Steingrímsson, yngri bróðir þeirra, lék einnig með liðinu í Soccerademótinu. Hann mun þó ekki skipta yfir í KA.
,,Hann verður í Völsungi í sumar, það er sameiginleg ákvörðun allra í þessu máli,\" sagði Gunnlaugur.