Fotbolti.net
18.02.11 - 15:25
Magnús Már Einarsson

Jón Hafsteinn og Sturlaugur í Gróttu (Staðfest)

Jón Hafsteinn Jóhannsson.

Jón Hafsteinn Jóhannsson.

Canon

Mynd: Leiknir.com - Matthías Ægisson

Grótta úr fyrstu deild hefur krækt í Jón Hafstein Jóhannsson og Sturlaug Haraldsson.

Báðir þessir leikmenn hafa æft og spilað með Gróttu að undanförnu og þeir hafa núna fengið félagaskipti.
Jón Hafsteinn er 24 ára gamall miðjumaður en hann kemur til Gróttu frá Völsungi.

Jón Hafsteinn skoraði sex mörk í nítján leikjum með Völsungi í annarri deildinni í fyrra.

Sturlaugur lék með Gróttu í yngri flokkunum áður en hann fór í KR. Þar lék hann í öðrum flokki en nú er hann kominn aftur í Gróttu.

Grótta mætir KA í fyrsta leik sínum í Lengjubikarnum á morgun en Jón Hafsteinn og Sturlaugur geta báðir spilað með liðinu í þeim leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.