Fotbolti.net
18.02.11 - 14:43
Magnús Már Einarsson

Einar Helgi í Grindavík (Staðfest)

Einar Helgi í Grindavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fotbolti.net-Davíð Örn Óskarsson

Grindavík hefur fengið kantmanninn Einar Helga Helgason til liðs við sig frá Njarðvík.
Einar Helgi er uppalinn Grindvíkingur en hann lék með Njarðvíkingum í fyrra.

Þar skoraði hann eitt mark í tólf leikjum í fyrstu deildinni auk þess sem hann kom við sögu í VISA-bikarnum.

Þessi 23 ára gamli leikmaður hefur einnig leikið með Þrótti Vogum og GG á meistaraflokksferli sínum.

Faðir hans er Helgi Bogason aðstoðarþjálfari Grindvíkinga og fyrrum þjálfari Njarðvíkinga.

Grindvíkingar hafa í vetur einnig samið við Jamie McCunnie, Magnús Björgvinsson, Michal Pospisil og Paul McShane.

Auðun Helgason, Grétar Ólafur Hjartarson, Gjorgi Manevski og Gilles Mbang Ondo hafa hins vegar farið frá félaginu frá því á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.