18.02.11 - 14:12
Magnús Már Einarsson
Hilmar Geir í Keflavík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Hilmar Geir Eiðsson er genginn til liðs við Keflavík frá Haukum en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net í dag.
Hann gerir tveggja ára samning við Keflavík sem komst að samkomulagi um að fá hann frá Haukum þó hann hafi verið samningsbundinn Hafnarfjarðarliðinu út næsta ár.
,,Mig vantaði nýja áskorun eftir að hafa verið lengi í Haukunum. Ég er spenntur fyrir að leika með Keflavík og tel að ég hafi sýnt í fyrra að ég get spilað í úrvaldsdeildinni,\" sagði Hilmar Geir við Fótbolta.net í dag.
,,Hluti af fjölskyldu minni er líka frá Keflavík svo að þau geta byrjað að hvetja mig af alvöru núna.\"
Hilmar Geir hefur spilað á hægri kanti og miðju hjá Haukum undanfarin ár. Hilmar Geir er 25 ára gamall og hefur allan sinn feril leikið með Haukum þar sem hann hóf meistaraflokksferil sinn árið 2004.
Hann hefur leikið með liðinu í þremur efstu deildum Íslandsmótsins en samtals hefur hann leikið 133 leiki í deild og bikar og skorað í þeim 30 mörk.
Hann lék 22 leiki með liðinu í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar og skoraði fjögur mörk.