18.02.11 - 18:29
Magnús Már Einarsson
Gísli Freyr í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Anton Ari Einarsson

Víkingur Ólafsvík hefur fengið framherjann Gísla Frey Brynjarsson til liðs við sig.
<i>,,Ég er spenntur fyrir sumrinu og það verður gaman að takast á við nýja áskorun,\"</I> sagði Gísli við Fótbolta.net í dag.
Gísli þekkir til hjá Víkingi því hann var á láni hjá félaginu sumarið 2008 þar sem hann skoraði tvö mörk í fjórtán leikjum í fyrstu deildinni.

Gísli hefur undanfarin ár verið á mála hjá ÍA þar sem hann lék meðal annars fjórtán leiki í fyrstu deildinni sumarið 2009.
Í fyrra var Gísli í láni hjá Aftureldingu fyrri hluta sumars þar sem hann skoraði tvö mörk í sex leikjum.
Hann fór síðan aftur í ÍA áður en hann kláraði sumarið á láni hjá Skallagrími þar sem hann skoraði fjögur mörk í tveimur leikjum.
Gísli er kominn með leikheimild með Víkingi en hann getur því spilað með liðinu gegn Val í Lengjubikarnum á sunnudag.