Fotbolti.net
18.03.11 - 13:55
Hafliði Breiðfjörð

Joe Tillen í Selfoss (Staðfest)

Josep Tillen ásamt Óskari Sigurðssyni, formanni deildarinnar, við undirritunina í morgun

Josep Tillen ásamt Óskari Sigurðssyni, formanni deildarinnar, við undirritunina í morgun

Canon

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Joe Tillen er genginn til liðs við 1. deildarlið Selfoss frá Fram en frá þessu var greint á Sunnlenska.is rétt í þessu.
Joe Tillen er 25 ára gamall, bróðir Sam Tillen og hafa þeir bræður leikið með Fram í Pepsi-deildinni undanfarin ár.

Joe spilaði 63 leiki í deild og bikar með Fram á síðustu þremur tímabilum og skoraði í þeim tíu mörk. Joe er vinstri fótar maður og getur leikið bæði sem bakvörður eða kantmaður.

Hann hætti hjá Fram í nóvember síðastliðinn og hefur æft með Valsmönnum síðan.

Joe verður í leikmannahópi Selfoss sem mætir KA í Lengjubikarnum á morgun á Akranesi.

Heimild: Sunnlenska.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.