18.04.11 - 09:00
Magnús Már Einarsson
Hin Hliðin - Andri Fannar Stefánsson (Valur)

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hin Hliðin er alltaf á dagskrá á mánudögum á Fótbolta.net. Í dag sýnir Andri Fannar Stefánsson leikmaður Vals á sér hina hliðina.
Andri Fannar er uppalinn hjá KA en hann gekk til liðs við Valsmenn síðastliðið haust.
Smellið hér til að sjá hina hliðina á fleiri leikmönnum

Fullt nafn: Andri Fannar Stefánsson
Gælunafn: AFS
Aldur: Að detta í tvítugt
Giftur / sambúð? Í sambandi með Hildi Mist
Börn: Nei
Hvað eldaðir þú síðast? Sambland af pasta, kjúklingi og salati
Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Eins mikið og er í boði
Uppáhaldssjónvarpsefni? Kemst lítið að fyrir fótboltanum
Besta bíómyndin? Inception af þessum sem hafa komið út á síðustu árum
Uppáhaldstónlistarmaður: Brandon Flowers og Bono
Uppáhaldsdrykkur? Vatn
Uppáhalds vefsíða? Fótbolti.net
Frægasti vinur þinn á Facebook? Gylfi Þór Sigurðsson kemur fyrst upp í hugann
Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki ( ef já, hvernig þá)? Nei en reyni að fara eftir sömu rútínu fyrir alla leiki
Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Klobbinn er sígildur
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Það þyrfti eitthvað mikið að gerast til að ég myndi klæðast Þórstreyjunni
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Zidane, Ronaldo#9 og svo voru Owen og Gerrard flottir saman á sínum tíma
Erfiðasti andstæðingur? Mér er minnisstæður deildarbikarsleikur KA vs Valur í Egilshöll fyrir nokkrum árum. Við vorum ekki langt frá því að tapa með tveggja marka tölu og maður var orðinn ringlaður á að elta Gumma Ben á miðjunni
Ekki erfiðasti andstæðingur? ’89 og ’90 í sparkvallabolta á móti okkur í ’91, held að við séum ósigraðir!
Besti samherjinn? Mjög margir góðir en ’91 árgangurinn í KA var góður sumarið 2007, fagmenn.
Sætasti sigurinn? Það var ansi sætt að vinna Þór í vítakeppni í undanúrslitum Ísl.móts í 3. flokki
Mestu vonbrigði? Síðasta sumar eins og það leggur sig og svo voru það mikil vonbrigði að komast ekki upp úr undanriðli EM U19..vorum með flott lið
Hvað er þitt uppáhaldslið í enska boltanum? Liverpool
Ef þú fengir að velja einn leikmann í heiminum í þitt lið. Hver yrði það? Það væri ekki slæmt að vera með Messi í hópnum
Hvern í liðinu þínu myndir þú kjósa á þing? Bjössi Hreiðars án efa. Hann jarðaði Atla Svein og Matta Guðmunds í rökræðu um Icesave um daginn.
Besti knattspyrnumaður Íslands í dag? Eiður Smári
Efnilegasti knattspyrnumaður landsins? Gylfi Þór
Fallegasti knattspyrnumaðurinn í deildinni? Gísli Páll Þórsari með meiru
Fallegasta knattspyrnukonan? Valsliðið er gullfallegt
Grófasti leikmaður deildarinnar? Ásgeiri Berki leiðist ekki að tækla
Besti íþróttafréttamaðurinn? Hef gaman að Gumma Ben
Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Halli Bjöss fær þetta (Staðfest)!
Hefurðu skorað sjálfsmark? Aldrei
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Man eftir einni frábærri tæklingu hjá liðsfélaga. Boltinn var dauður á miðjunni og hann renndi sér á fleygiferð og náði boltanum á undan andstæðingnum en felldi dómarann í leiðinni sem lá óvígur eftir og við brunuðum fram í skyndisókn.
Hvenar lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? 15 ára í Powerademótinu gegn Huginn
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Hann er góður eins og hann er.
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu? Niðurskokkið er leiðinlegt en skilar sínu
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Anfield í Liverpool er góður staður
Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Býsna fljótur..
Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Xabi Alonso er toppmaður, hræðilegt þegar hann fór frá LFC
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum? Fylgist með öllu því helsta sem er að gerast
Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik? Ætli það hafi ekki verið einhver landsleikur..
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Adidas
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla? Goðafræðin var hausverkur á sínum tíma
Vandræðalegasta augnablik? Það var hálfvandræðalegt að láta Þór rúlla yfir okkur í báðum leikjunum síðasta sumar!
Komdu með eina staðreynd um þig sem flestir vita ekki um: Á líklega stærsta safn landsins af heilum vinstri fótboltaskóm úti í bílskúr, einhverra hluta vegna voru hægri skórnir alltaf fljótari að eyðileggjast! Ef einhverjum vantar vinstri skó í stærð 42 bara hafa samband.