18.04.11 - 14:03
Magnús Már Einarsson
Tveir Serbar og Stefán í Tindastól/Hvöt (Staðfest)

Stefán, Miljkovic og Markovic.

Mynd: Tindastóll/Hvöt

Stefán, Miljkovic og Markovic.

Mynd: Tindastóll/Hvöt
Tindastóll/Hvöt úr annarri deild hefur fengið þrjá nýja leikmenn til liðs við sig.
Félagið hefur fengið framherjann Dejan Miljkovic frá Serbíu. Dejan er fæddur árið 1978 en hann á marga leiki að baki í heimalandi sínu með sterkum liðum.

Milan Markovic, sem lék með Hvöt í fyrra, mun einnig leika með Tindastól/Hvöt í sumar.
Markovic, sem verður 32 ára á árinu, er varnarmaður en hann skoraði tvö mörk í 17 leikjum í fyrra.
Þá er Stefán Hafsteinsson kominn til Tindastóls/Hvatar á láni frá KA. Stefán er fæddur 1993 en þessi ungi bakvörður er uppalinn hjá Hvöt.
Stefán lék 20 leiki með Hvöt árið 2009 en hann á þrjá leiki að baki með U17 ára landsliði Íslands.

Heimild: Heimasíða Tindastóls