18.11.10 - 15:08
Magnús Már Einarsson
Sindri Snær í Val (Staðfest)

Mynd: Heimasíða Vals

Mynd: Heimasíða Vals
Markvörðurinn Sindri Snær Jensson hefur gengið til liðs við Val en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.
Sindri er 24 ára gamall og lék 16 leiki með Þrótti í Pepsi-deildinni sumarið 2009.
Hann tók sér að mestu hlé frá knattspyrnu í sumar, aðallega vegna meiðsla á undirbúningstímabili. Hann lék þó fjóra leiki með Berserkjum í þriðju deildinni.
Á heimasíðu Vals kemur fram að Sindri Snær ætlar sér að komast í leikform og veita Haraldi Björnssyni og Ásgeiri Magnússyni keppni um markvarðastöðurnar fyrir næsta sumar.
Sindri er sjöundi leikmaðurinn sem Valur fær til sín í haust en áður höfðu Guðjón Pétur Lýðsson, Halldór Kristinn Halldórsson, Andri Fannar Stefánsson, Hörður Sveinsson, Pól Jóhannus Justinussen og Jónas Þór Næs samið við félagið.

Heimild: Heimasíða Vals