Fotbolti.net
18.11.10 - 22:20
Alexander Freyr Tamimi

Robert Pires til Aston Villa (Staðfest)

Robert Pires er genginn til liðs við Aston Villa.

Robert Pires er genginn til liðs við Aston Villa.

Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur tryggt sér undirskrift Robert Pires, fyrrum leikmanns Arsenal, og skrifaði hann undir sex mánaða samning við félagið.
Pires var goðsögn á sínum tíma hjá Arsenal og gæti hann hafið endurkomu sína í ensku úrvalsdeildina þegar Villa mætir Blackburn á sunnudag.

„Ég get ekki beðið eftir því að spila og klæðast nýju treyjunni,\" sagði Pires við heimasíðu Villa.

„Ég er mjög ánægður með að hafa gengið til liðs við Aston Villa því þetta er stórt félag á Englandi.\"

Pires hjálpaði Frakklandi til sigurs á HM 1998 og EM 2000 og vann ensku úrvalsdeildina í tvígang með Arsenal.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.