18.12.10 - 07:18
Hafliði Breiðfjörð
Rannver Sigurjónsson og Örn Úlfarsson í ÍR (Staðfest)

Rannver Sigurjónsson í leik með Breiðabliki. Hann er genginn í raðir ÍR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍR-ingar hafa fengið góðan liðsstyrk því Rannver Sigurjónsson er genginn til liðs við félagið frá Íslandsmeisturum Breiðabliks. Þá hefur Örn Úlfarsson ákveðið að taka fram skóna að nýju og leika með ÍR en kemur frá Víkingi.
Rannver Sigurjónsson er 26 ára gamall og spilaði þrjá leiki með Breiðablik er liðið varð Íslandsmeistari í sumar. Hann hafði komið til félagsins frá Aftureldingu þar sem hann var undanfarin ár.
ÍR-ingar hafa annars verið á fullu við að semja við leikmenn sína og þannig hefur þeirra besti maður, Árni Freyr Guðnason skrifað undir tveggja ára samning við félagið og er orðinn fyrirliði en hann tekur við bandinu af Trausta Birni Ríkharðssyni sem fór í Fylki.
Auk hans hafa þeir Elías Ingi Árnason, Guðjón Gunnarsson, Haukur Ólafsson, Heimir Snær Guðmundsson og Karl Brynjar Björnsson gert tveggja ára samninga við félagið og þeir Almar Þorleifsson og Brynjar Örn Sigurðsson gert eins árs samninga en þar eru ungir efnilegir leikmenn.