19.01.11 - 15:02
Magnús Már Einarsson
Diego Simeone tekur við Catania (Staðfest)

Atvikið fræga á HM 1998.

Mynd: Getty Images

Atvikið fræga á HM 1998.

Mynd: Getty Images
Diego Simeone hefur verið ráðinn þjálfari Catania á Ítalíu en gengið var frá ráðningu hans í gærkvöldi.
Þessi fertugi Argentínumaður skrifaði undir eins og hálfs árs samning við Catania.
Hann tekur við liðinu af Marco Giampaolo sem var rekinn í gær en Catania er sem stendur í 15.sæti í Serie A, þremur stigum frá fallsvæðinu.
Simeone lék á sínum tíma með Inter og Lazio á Ítalíu sem og Racing Club, Estudiantes, River Plate og San Lorenzo í heimalandinu.
Þá lék hann einnig 106 leiki með argentínska landsliðinu.
Hann kom meðal annars mikið við sögu í frægum leik Englendinga og Argentínumanna á HM 1998 þegar David Beckham fékk að líta rauða spjaldið fyrir að sparka í Simeone.

Heimild: Sporting Life