19.02.11 - 15:29
Magnús Már Einarsson
Ísak Örn í Keflavík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason

Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
Keflavík hefur fengið framherjann Ísak Örn Þórðarson til liðs við sig frá Njarðvík.
Ísak er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Keflavík en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Þessi 22 ára gamli leikmaður hefur æft með Keflavík í vetur en hann spilaði einnig með liðinu á Fótbolta.net mótinu.

Á ferli sínum hefur Ísak skorað átta mörk í 56 deildar og bikarleikjum í meistaraflokki með Njarðvík.
Ísak er þriðji leikmaðurinn sem Keflavík fær frá nágrönnum sínum í Njarðvík í vetur en áður höfðu Frans Elvarsson og Kristinn Björnsson farið sömu leið.
Þá hefur Keflavík einnig krækt í Grétar Ólaf Hjartarson og Hilmar Geir Eiðsson í vetur en sá síðarnefndi kom til félagsins frá Haukum í gær.

Heimild: Heimasíða Keflavíkur