Fotbolti.net
19.03.11 - 12:21
Ívan Guðjón Baldursson

Ungverskar landsliðskonur komnar til Þróttar (Staðfest)

Ungverskar landsliðskonur komnar til Þróttar (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

Kvennaboltinn
Kvennalið Þróttar í knattspyrnu hefur fengið mikilvægan liðsstyrk frá Ungverjalandi fyrir átökin í Pepsideildinni næsta sumar. Tvær ungverskar konur hafa skrifað undir samning við liðið fyrir sumarið en eru þær báðar í ungverska landsliðinu.

Ungversku konurnar, eða stúlkurnar öllu heldur, heita Fanny Vágó og Alexandra Toth og eru báðar um tvítugt en þó með gríðarlega reynslu bæði með landsliði og í Evrópukeppnum.
Fanny Vágó hefur verið einn helsti markaskorari ungverska landsliðsins síðustu ár. Hún er búin að vera fastamaður í landsliðinu síðan 2007 og skorað á þeim tíma 9 mörk í 22 leikjum.

Fanny verður tvítug á þessu ári og því greinilegt að hún á enn eftir að bæta sig. Hún er yngsti leikmaður sögunnar sem hefur leikið með ungverska A-landsliðinu en í sínum fyrsta leik var hún 15 ára og 229 daga gömul.

Fanny spilar sem framherji eða sóknarsinnaður miðjumaður. Hún kemur frá MTK Hungária FC frá Búdapest og varð tvöfaldur meistari með því liði í ungverska kvennaboltanum á síðustu leiktíð. Fanny hefur leikið 80 leiki í ungversku úrvalsdeildinni og skorað í þeim 72 mörk, sem verður að teljast mjög gott sérstaklega í ljósi þess að hún er ekki enn orðin tvítug.

Alexandra Tóth varð 21 árs gömul á föstudaginn og leikur sem varnarmaður eða varnarsinnaður miðjumaður. Hún hefur leikið 125 leiki í ungversku úrvalsdeildinni og skorað í þeim 8 mörk. Alexandra kemur frá sama liði og Fanny og er Alexandra einnig byrjunarliðsmaður í ungverska A-landsliðinu.

Báðar hafa þær leikið með MTK í Evrópukeppni og hafa því góða reynslu þrátt fyrir að vera í yngri kantinum. Það er skemmtileg tilviljun að íslenska kvennalandsliðið dróst með Ungverjum í riðli í undankeppni fyrir EM 2013 og munu Fanny og Alexandra væntanlega spila gegn íslenska landsliðinu þegar að undankeppninni kemur.

Ungverjarnir hafa samið við Þrótt út leiktíðina og munu þær sameinast liðinu í æfingaferð þess á Spáni í upphafi næsta mánaðar ásamt bandaríska markverðinum Mallori Lofton-Malachi.

Heimild: Trottur.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.