19.11.10 - 07:56
Hafliði Breiðfjörð
Sigríður Þorláksdóttir þjálfar Hött (Staðfest)

Sigríður Björk við undirskriftina við Hött.

Mynd: Höttur

Sigríður Björk við undirskriftina við Hött.

Mynd: Höttur

Sigríður Björk Þorláksdóttir Baxter hefur skrifað undir samning um að þjálfa kvenna lið Hattar næsta árið. Sigríður mun þjálfa og spila með meistaraflokki kvenna.
Sigríður er útskrifaður íþróttafræðingur frá Háskóla Íslands ásamt því að vera með UEFA–B próf frá KSÍ. Sigríður hefur unnið sem aðstoðarþjálfari yngri flokka hjá BÍ á Ísafirði og hjá Breiðablik, þjálfað 2. flokk kvenna hjá Val sumarið 2009 og meistarflokk kvenna hjá Fram sumarið 2010.
Einnig hefur Sigríður mikla reynslu sem leikmaður en hún spilaði með Hetti árið 2007 og 2008.
,,Knattspyrnufólk á Egilsstöðum bindur miklar vonir við að hið unga kvennalið félagsins eflist með tilkomu Sigríðar. Sigríður er flutt til Egilsstaða og hefur þegar hafið störf,\" sagði í tikynningu félagsins.