19.11.10 - 15:20
Hafliði Breiðfjörð
Sinisa Kekic tekur við þjálfun Reynis (Staðfest)

Kekic í leik með Reyni. Hann mun ekki spila áfram með liðinu.

Mynd: Fotbolti.net-Davíð Óskarsson

Sinisa Kekic hefur verið ráðinn þjálfari Reynis frá Sandgerði en hann tekur við starfinu af Kjartani Mássyni sem var í gær ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu.
Sinisa Kekic hefur spilað með Reyni undanfarin tvö ár en hann er nýorðinn 41 árs gamall. Þrátt fyrir háan aldur fótboltalega séð spilaði hann 21 leik í deild og bikar með Reyni í sumar og skoraði eitt mark. Hann mun ekki leika áfram með liðinu í 2. deildinni næsta sumar.
Hann hefur spilað fótbolta hér á landi í fjölda ára og kom fyrst hingað til lands í júní árið 1996 er hann gekk í raðir Grindavíkur.
Hann spilaði í tíu ár með Grindavík en gekk til liðs við Þrótt sumarið 2006 og fór þaðan til Víkings 2007. Frá Víkingi fór hann svo í HK sumarið 2008 og fór svo í Reyni þar sem hann var í sumar og verður nú þjálfari.
Hann lék 259 leiki í deild og bikar hér á landi og skoraði í þeim 78 mörk en sem fyrr sagði leggur hann nú fótboltaskóna á hilluna og einbeitir sér að þjálfun.