Fotbolti.net
19.11.10 - 15:29
Hafliði Breiðfjörð

Indversk fjölskylda kaupir Blackburn á 43 milljónir (Staðfest)

Indversk fjölskylda kaupir Blackburn á 43 milljónir (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Rao fjölskyldan frá Indlandi hefur gengið frá 43 milljón punda kaupum á enska úrvalsdeildarfélaginu Blackburn Rovers en BBC segir frá því í dag að fjölskyldan kaupi hluti félagsins á 23 milljónir og taki yfir 20 milljón punda skuldir.
Sjóður sem Jack Walker fyrrverandi eigandi félagsins stofnaði seldi 99,9% hlut sinnn í félaginu til félags Indverjanna, Venky\'s London Limited.

Paul Egerton-Vernon formaður sjóðsins sagði: ,,Við erum mjög ánægðir með að láta Rovers til Rao fjölskyldunnar. Við höfum heillast af ákafa þeirra og plönum og hugmyndum um fjnárfestingar auk þess sem þeir vilja varðveita arf Jack Walker.\"

Blackburn Rovers verður fyrsta enska úrvalsdeildarfélagið í eigu Indverja en þeir telja reynslu sína í heimalandinu geta hjálpað til við að opna stóran markað fyrir félagið. Sam Allardyce stjóri liðsins sagðist ánægður með yfirtökuna og sagðist vonast til að fá fjármagn til leikmannakaupa en liðið er í fallbaráttu.

Samkæmt vef Indverjanna var fyrirtæki þeirra stofnað árið 1976 og hefur aðalrekstur þeirra gengið út á að skapa hænsni fyrir alifuglamarkaðinn í heimalandinu. Fyrirtækið hefur reyndar farið út í fleiri viðskipti eins og heilsuvörur fyrir fólk, gæludýramat og aðrar heilsuvörur.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.