Fotbolti.net
19.12.10 - 19:12
Hafliði Breiðfjörð

Schumacher-Hodge og Makoski í Þór/KA (Staðfest)

Manya Makoski í leik með Los Angeles Sol.

Manya Makoski í leik með Los Angeles Sol.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennaboltinn
Kvennalið Þór/KA hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir baráttuna í Pepsi-deild kvenna á næstu leiktíð því tveir bandarískir leikmenn eru gengnir til liðs við félagið. Þetta kom fram á vef Þórs en leikmennirnir heita Manya Makoski og Marisha Schumacher-Hodge.
Manya Makoski er 26 ára gamall vængmaður en hún var síðast á mála hjá Atlanta Beat í Bandarísku WPS deildinni en ári áður var hún á mála hjá Los Angels Sol. Makoski hefur leikið upp öll yngri landslið Bandaríkjanna og var meðal annars í leikmannahópi U-19 ára landsliði BNA sem hrósaði sigri á heimsmeistaramótinu í Kanada 2002. Það er því ljóst að hér er á ferð hörku leikmaður.

Marisha Schumacher-Hodge er 23 ára miðjumaður en hún var síðast á mála hjá finnska liðinu Kokkola PV en þar áður var hún samningsbundin Atlanta Beat. Marisha er ekki ókunnug norðurlöndum en hún lék einnig með sænska liðinu Ragsveds þar sem hún skoraði eitt mark og lagði upp 5 í átta leikjum liðsins.

Hér að neðan má sjá viðtal sem tekið var á vef Þórs við Viðar Sigurjónsson þjálfara liðsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.