20.01.11 - 08:41
Magnús Már Einarsson
Juan Pablo Angel til LA Galaxy (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Los Angeles Galaxy hefur fengið framherjann Juan Pablo Angel frá New York Red Bulls.
Þessi 35 ára gamli Kolumbíumaður mun því leika með David Beckham, Landon Donovan og félögum á komandi tímabili.
Angel hefur skorað 58 mörk í 102 leikjum með New York Red Bulls undanfarin fjögur tímabil.
Hann lék áður með Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni þar sem hann skoraði 44 mörk í 175 leikjum.
,,Hann er einn af bestu markaskorurunum í MLS síðustu fjögur ár og ég býst fastlega við því að hann muni standa sig vel í treyju Galaxy,\" sagði Bruce Arena þjálfari LA Galaxy.

Heimild: Reuters