Fotbolti.net
20.01.11 - 11:28
Magnús Már Einarsson

Adam Hammill til Wolves (Staðfest)

Adam Hammill til Wolves (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wolves hefur keypt kantmanninn Adam Hammill frá Barnsley á 500 þúsund pund.
Hammill, sem er 22 ára, skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við Wolves.

Hammill hefur verið einn besti leikmaðurinn í Championship deildinni í vetur en þessi fyrrum leikmaður Liverpool hefur meðal annars skorað nokkur glæsileg mörk fyrir Barnsley.

Í samningi hans hjá Barnsley var klásúla sem gerði honum kleift að fara á 500 þúsund pund og Wolves nýtti sér það.

Líklegt er að Hammill komi beint inn í leikmannahóp Wolves fyrir leikinn gegn Liverpool á laugardag.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.