Fotbolti.net
20.01.11 - 20:02
Magnús Már Einarsson

Mateja Kezman til South China (Staðfest)

Mateja Kezman til South China (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

South China, frá Hong Kong, hefur samið við framherjann Mateja Kezman.
Þessi 31 árs gamli Serbi var síðasta á mála hjá PSG en hann losnaði undan samningi þar undir lok síðasta árs.

Áður lék Kezman með Chelsea, Atletico Madrid og PSV Eindhoven en ferill hans hefur legið niður á við undanfarin ár.

,,Ég vil njóta meiri velgengni í fótboltanum og ég tel að South China FC geti hjálpað mér við það. Ég hef talað við stjórann og séð liðið spila og ég hef trú á að þetta sé rétta liðið fyrir mig,\" sagði Kezman.

Kezman er annar fyrrum leikmaðurinn úr ensku úrvalsdeildinni sem gengur í raðir South China því Nicky Butt samdi einnig við félagið á dögunum.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.