20.03.11 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bergþóra Gná komin til Selfoss (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennalið Selfyssinga var að fá góðan liðsstyrk fyrir sumarið en liðinu tókst að krækja sér í Bergþóru Gná Hannesdóttur sem er tvítug og spilar sem sóknarsinnaður miðjumaður.
Bergþóra kemur frá Valsörum en hún lék síðasta tímabil á láni hjá Fram í fyrstu deildinni.
Bergþóra kemur frá Valsörum en hún lék síðasta tímabil á láni hjá Fram í fyrstu deildinni.
Bergþóra er góður liðsstyrkur fyrir baráttu Selfyssinga í fyrstu deildinni en liðið komst í úrslitakeppnina í fyrra og tapaði naumlega fyrir Þrótturum sem fóru upp í efstu deild ásamt ÍBV.
Bergþóra er lögleg í fyrsta leik Lengjubikarsins sem verður gegn KR.
Bergþóra er lögleg í fyrsta leik Lengjubikarsins sem verður gegn KR.
