Fotbolti.net
20.07.23 - 22:37
Brynjar Ingi Erluson

Bjóða Mbappe tíu ára samning - Sá stærsti í íþróttasögunni

Kylian Mbappe

Kylian Mbappe

Canon

Mynd: Getty Images

Paris Saint-Germain í Frakklandi er reiðubúið að bjóða franska sóknarmanninum Kylian Mbappe stærsta samning sem sést hefur í íþróttaheiminum en Defensa Central greinir frá og hafa miðlar á borð við Sport og Forbes tekið undir þær fregnir.
Mbappe verður samningslaus á næsta ári og á PSG í hættu á að missa einn besta fótboltamann heims frá sér á frjálsri sölu en Real Madrid er talinn líklegasti áfangastaður kappans.

Eigendur PSG voru óánægðir með að Mbappe hafi ekki ákveðið að virkja klásúlu í samningnum sem framlengir hann um annað ár og er því aðeins tvennt í stöðunni; selja hann í sumar eða auðvitað að bjóða honum samning sem hann getur ekki hafnað.

Defensa Central segir að það sé nákvæmlega það sem PSG ætlar að gera en félagið ætlar að bjóða honum tíu ára samning þar sem hann mun þéna einn milljarð evra í heildina.

Þetta yrði stærsti samningur í sögu allra íþrótta ef Mbappe ákveður að samþykkja tilboðið en auðvitað yrði hann bundinn liðinu næstu tíu árin eða til 34 ára aldurs.

Cristiano Ronaldo er að þéna 200 milljónir evra í árslaun hjá Al-Nassr í Sádi-Arabíu en hann gerði tveggja og hálfs árs samning.

Stærsti samningur í sögu alla íþrótta er þegar Lionel Messi gerði fjögurra ára samning við Barcelona árið 2017 en hann þénaði rúmar 600 milljónir evra fyrir þessi fjögur ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.