Fotbolti.net
20.12.10 - 13:40
Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Ragnar áfram með kvennalandsliðið (Staðfest)

Sigurður Ragnar Eyjólfsson.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Kvennaboltinn
Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning um þjálfun kvennalandsliðsins en þetta staðfesti Þórir Hákonarson framkvæmdastjóri KSÍ við Fótbolta.net í dag.
Samningur Sigurðar Ragnars við KSÍ var að renna út en hann hafði tekið við þjálfun liðsins 7. desember 2006.

Undir hans stjórn hefur liðið tekið miklum framförum síðan þá og komst í lokakeppni Evrópumóts landsliða í Finnlandi árið 2009. Liðinu mistókst svo að komast í lokakeppni Heimsmeistaramótsins sem fer fram næsta sumar.

Næsta verkefni liðsins verður æfingamótið Algarve Cup sem fer fram í Portúgal í mars næstkomandi.

Næsta haust hefst svo undankeppni Evrópumóts landsliða en dregið verður í riðla fyrir þá keppni 13. mars næstkomandi.

Sigurður Ragnar er með Pro Liecence þjálfaragráðu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.