20.12.10 - 18:15
Hafliði Breiðfjörð
Tevez hættur við að vilja fara frá Man City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Argentínumaðurinn Carlos Tevez verður áfram leikmaður Manchester City en félagið staðfesti þetta í yfirlýsingu á vef sínum nú í kvöld.
Þar kemur fram að félagið hafi fundað með Tevez til að hreinsa andrúmsloftið og þar hafi framherjinn staðfest að hann vilji vera áfram hjá félaginu og hafi dregið til baka ósk sína um að fá að yfirgefa félagið.
,,Manchester City getur stafest við stuðningsmenn sína að viðræður til að hreinsa andrúmsloftið hafa farið fram með Carlos Tevez,\" sagði í yfirlýsingu á vef Manchester City.
,,Á þessum fundi lýsti Carlos yfir afgjörri hollustu við félagið og dró formlega til baka ósk sína um félagaskipti.Samningur Carlos er óbreyttur og bæði Carlos og knattspyrnufélagið vilja einbeita sér að þeim tækifærum sem eru framundan,\" sagði í yfirlýsinguninni.
Roberto Mancini tjáði sig einnig á vefnum um málið og sagði: ,,Ég er ánægður með að við getum nú einbeitt okkur að fótboltamálum og getum hlakkað til þess að Carlos spili stórt hlutverk í framgangi félagsins.\"

Heimild: Vefur Man City