Fotbolti.net
21.01.11 - 09:48
Magnús Már Einarsson

Eric Dier til Everton (Staðfest)

Eric Dier til Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Everton hefur fengið varnarmanninn unga Eric Dier á láni frá Sporting Lisabon út tímabilið.

Þessi 17 ára gamli leikmaður er frá Englandi en hann flutti til Portúgals sjö ára gamall þegar móðir hans fékk vinnu í kringum EM 2004.

Fjölskylda hans flutti síðan aftur til Englands en Dier hefur verið í Portúgal þar sem hann er samningsbundinn Sporting til 2013.
Manchester United, Tottenham og Arsenal hafa áður sýnt Dier áhuga en hann verður nú hjá Everton út tímabilið og mun líklega byrja á að spila með unglingaliði félagsins.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.