Fotbolti.net
21.01.11 - 12:21
Magnús Már Einarsson

John Carew til Stoke (Staðfest)

John Carew til Stoke (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Stoke hefur fengið John Carew framherja Aston Villa á láni út tímabilið.

Þessi 31 árs gamli Norðmaður fékk að fara frá Villa eftir að félagið keypti Darren Bent í vikunni.
Carew verður samningslaus í sumar og því getur Stoke fengið hann frítt þegar að lánssamningurinn klárast ef hann nær að standa sig vel hjá félaginu.

,,Þetta er frábær viðbót. Tölfræðin talar sínu máli hjá John því hann hefur skorað mörk í bestu deildunum allan sinn feril,\" sagði Tony Pulis stjóri Stoke.

Carew gæti leikið sinn fyrsta leik með Stoke þegar liðið mætir Fulham á morgun.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.