21.01.11 - 19:39
Magnús Már Einarsson
Kenny Miller til Bursaspor (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Tyrkneska félagið Bursaspor hefur keypt framherjann Kenny Miller frá Rangers en talið er að kaupverið sé í kringum 400 þúsund pund.
Miller skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við Bursaspor á opinni æfingu hjá félaginu í dag.
Átta þúsund stuðningsmenn Bursaspor mættu á æfinguna og fögnuðu Miller þegar hann skrifaði undir.
Miller skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við Bursaspor á opinni æfingu hjá félaginu í dag.
Átta þúsund stuðningsmenn Bursaspor mættu á æfinguna og fögnuðu Miller þegar hann skrifaði undir.
Miller, sem er 31 árs, mun leika sinn fyrsta leik með Bursaspor á sunnudag þegar liðið mætir Konyaspor.
Heimild: Sporting Life
