21.01.11 - 18:05
Magnús Már Einarsson
Pascal Chimbonda og Wayne Routledge til QPR (Staðfest)

Pascal Chimbonda.

Mynd: Getty Images

Pascal Chimbonda.

Mynd: Getty Images
Heiðar Helguson, framherji QPR, eignaðist nú síðdegis tvo nýja liðsfélaga þegar Pascal Chimbonda og Wayne Routledge komu til félagsins.
Chimbonda losnaði undan samningi hjá Blackburn í gær og þessi 31 árs gamli leikmaður hefur núna gert samning við QPR út tímabilið.
Routledge kemur á láni frá Newcastle út þetta tímabill en hann þekkir vel til hjá QPR.
Þessi 26 ára gamli kantmaður gekk í raðir QPR í janúar árið 2009 og lék 49 leiki með liðinu áður en hann fór til Newcastle ári síðar.
Chimbonda og Routledge munu æfa með QPR í fyrramálið og þeir gætu mögulega leikið sinn fyrsta leik með liðinu gegn Coventry á sunnudag.
QPR er sem stendur í efsta sæti Championship deildarinnar en liðið hefur þriggja stiga forskot á Swansea sem er í öðru sætinu.

Heimild: Heimasíða QPR