21.02.11 - 11:32
Magnús Már Einarsson
Magnús Már Lúðvíksson í KR (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Magnús Már Lúðvíksson hefur gengið til liðs við sitt gamla félag KR. Magnús hefur æft með KR undanfarnar vikur og hann hefur núna fengið leikheimild með liðinu.
Magnús lék með Hödd í Noregi á síðasta tímabili en hann skoraði níu mörk og hjálpaði liðinu að komast upp í næstefstu deild.
Þessi 29 ára gamli leikmaður hefur leikið sem kant og sóknarmaður í gegnum tíðina en hjá Hödd var hann hægri bakvörður.
Magnús lék með Þrótti frá 2006-2009 með stuttu stoppi hjá uppeldisfélagi sínu KR.
Að auki hefur Magnús leikið með Fjölni, ÍBV og Val á Íslandi.