Fotbolti.net
21.02.11 - 13:14
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Vincenzo Montella tekur við Roma (Staðfest)

Montella fagnaði mörkum sínum alltaf með því að leika flugvél.

Montella fagnaði mörkum sínum alltaf með því að leika flugvél.

Canon

Mynd: Getty Images

Vincenzo Montella hefur verið ráðinn þjálfari Roma út tímabilið en hann tekur við af Claudio Ranieri sem hætti í gær.
Ranieri sagði af sér eftir 4-3 tap gegn Genoa í gær þar sem Roma missti niður þriggja marka forskot.

Montella, sem er 36 ára, lék með Roma frá 1999-2009 og sló í gegn þar.

Montella skoraði 118 mörk í 267 leikjum með liðinu en undir lok ferilsins fór hann einnig til Fulham og Sampdoria á láni.

Undanfarið hefur Montella unnið sem þjálfari unglingaliðs Roma en hann fær nú tækifæri til að stýra aðalliðinu út tímabilið.

Það að Montella er ráðinn út tímabilið hefur ýtt undir sögusagnir þess efnis að Roma muni reyna að fá Carlo Ancelotti frá Chelsea í sumar. Ancelotti lék í tíu ár með Roma á sínum tíma en hann er undir mikilli pressu hjá Chelsea sem stendur.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.