Fotbolti.net
21.02.11 - 14:27
Magnús Már Einarsson

Yacine Si Salem til Grindavíkur (Staðfest)

Yacine Si Salem og Ólafur Örn Bjarnason þjálfari Grindavíkur.

Yacine Si Salem og Ólafur Örn Bjarnason þjálfari Grindavíkur.

Canon

Mynd: Heimasíða Grindavíkur

Grindavík hefur fengið Yacine Si Salem til liðs við sig en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Salem, sem er fæddur í Alsír, er 23ja ára og spilar sem framliggjandi miðjumaður eða framherji.

Hann ólst upp hjá Le Havre í Frakklandi en var í tvö ár, 2008-2010, hjá Thrasyvoulos Filis í Grikklandi í 1. og 2. deild áður en hann fékk fékk samningnum rift vegna fjárhagsörðugleika félagsins. Hann hefur æft og leikið að undanförnu í Frakklandi með neðri deildarliðinu Oissel.

,,Salem kom til Grindavíkur á eigin vegum og stóð sig það vel á reynslutímanum að honum var boðinn samningur hjá félaginu,\" segir á heimasíðu Grindavíkur.

Hann er sjötti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Grindavíkurliðið fyrir sumarið. Hinir eru Jamie McCunnie og Magnús Björgvinsson frá Haukum, Paul McShane frá Fram, Einar Helgi Helgason frá Njarðvík og tékkneski framherjinn Michal Pospisil.

Grétar Ólafur Hjartarson, Auðun Helgason, Rúnar Daníelsson, og Gilles Mbang Ondo eru hins vegar farnir frá því á síðasta tímabili.

Heimild: Heimasíða Grindavíkur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.