21.03.11 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Esteban Vigo rekinn frá Hercules (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Esteban Vigo hefur verið rekinn frá starfi sínu sem knattspyrnustjóri Hercules á Spáni eftir að liðið tapaði 4-0 á heimavelli gegn Osasuna.
Tapið var það níunda í síðustu ellefu leikjum og er liðið í neðsta sæti spænsku úrvalsdeildarinnar.

Vigo er 56 ára gamall og stýrði Hercules upp úr spænsku annarri deildinni (sem virkar eins og fyrsta deildin í öðrum löndum, eða Championship á Englandi) og er hann eini stjórinn í spænsku úrvalsdeildinni sem tekist hefur að sigra Barcelona á þessu tímabili.
Hercules hefur náð góðum árangri gegn stóru liðum deildarinnar en liðið lagði Sevilla og Atletico Madrid af velli og náði jafntefli gegn Villareal ásamt því að sigra Börsunga.
Eftir áramót breyttist gengi liðsins til hins verra og er liðið aðeins búið að fá sjö stig í þréttan leikjum og nú er liðið fjórum stigum frá öruggu sæti í deildinni þegar níu leikir eru eftir.

Heimild: ESPN