Fotbolti.net
21.03.11 - 15:42
Magnús Már Einarsson

Marko Valdimar Stefánsson til Oskarshamns AIK (Staðfest)

Marko Valdimar Stefánsson til Oskarshamns AIK (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gunnlaugur Júlíusson

Marko Valdimar Stefánsson, varnarmaður Grindvíkinga, hefur gengið til liðs við sænska félagið Oskarshamns AIK á láni fram á haust.
,,Ég er mjög sáttur með þetta. Það er fínt að fá smá tilbreytingu og prufa eitthvað nýtt,\" sagði Marko Valdimar við Fótbolta.net í dag.

Oskarshamns AIK leikur í þriðju deildinni í Svíþjóð, sem er fimmta efsta deild, og stefnir á að komast upp í ár.

,,Þetta er mjög fínt félag. Þeir spila góðan fótbolta og markmiðið þeirra er að fara upp í aðra deild. Þeir klúðruðu því í úrslitaleik í fyrra en þeir ætla beint upp núna.\"

Marko, sem er tvítugur, hefur leikið nítján deildar og bikarleiki með meistaraflokki Grindavíkur síðan hann steig sín fyrstu skref með liðinu árið 2008.

Marko var einnig á láni hjá Njarðvík í fyrstu deildinni hluta tímabils 2008 sem og í fyrra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.