21.03.11 - 21:34
Ívan Guðjón Baldursson
Diomansy Kamara til Leicester á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sven Göran Eriksson, knattspyrnustjóri Leicester City, er búinn að fá Diomansy Kamara til liðsins á lánssamning frá Fulham. Eftir komu Eiðs Smára missti Kamara sæti sitt á varamannabekk Fulham og vildi ólmur komast í tækifæri til að spila með öðru liði.
Kamara er 30 ára gamall framherji frá Senegal og spilar hann með Leicester út leiktíðina. Í lánssamningi hans er klásúla sem gerir Kamara kleift að spila með Leicester ef liðið kemst í umspil í Championship deildinni og gæti átt stóran þátt í að koma liðinu upp í úrvalsdeildina samkvæmt Eriksson.

,,Diomansy býr yfir miklum gæðum og er frábær sóknarmaður, hann er frábær viðbót við liðið okkar,\" sagði Sven Göran í viðtali við opinbera vefsíðu Leicester.
,,Hann er hraður, tæknilegur og hefur úrvalsdeildargæði. Ég er viss um að hann muni finna sig vel hér hjá okkur.\"
Kamara skoraði 23 mörk fyrir West Bromwich Albion tímabilið 2006-07 og átti stóran þátt í því að koma liðinu upp í úrvalsdeild en var seldur til Fulham eftir tímabilið á sex milljónir punda. Hjá Fulham hefur Kamara aðeins skorað 18 mörk í 68 leikjum.

Heimild: Sky Sports