Fotbolti.net
21.04.11 - 12:08
Hafliði Breiðfjörð

Denis Abdulahi í Víking (Staðfest)

Denis Abdulahi í Víking (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Finnski miðjumaðurinn Denis Abdulahi er genginn til liðs við nýliða Víkings í Pepsi-deild karla en þetta var staðfest á vef stuðningsmanna félagsins, Víkingur.net, í morgun.

Leikmaðurinn kemur til Víkings á láni frá sænska félaginu Örebro og mun aðeins spila hluta af sumrinu hér á landi.
Abdulahi er varnarsinnaður miðjumaður sem á að baki 35 leiki með finnska 1. deildar liðinu Viikingit en einnig hefur hann spilað þrjá leiki fyrir Örebro eftir að hann gekk í raðir þess í júlí í fyrra.

Erfiðlega hefur gengið fyrir Víking að fá hann lausan frá Örebro þar sem þjálfari liðsins hefur ekki viljað missa hann frá liðinu. Nú í morgun var þó gengið frá málum og er hann væntanlegur til landsins.

Abdulahi verður í Víkinni til fyrsta ágúst og nær því að minnsta kosti tólf leikjum með liðinu en möguleiki er á að einn leikur bætist þar við. Abdulahi æfði með Víkingum á Spáni á dögunum. Hann spilaði æfingaleik gegn Leikni þar sem hann þótti standa sig frábærlega.

Auk þess að vera á mála hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Örebro er Abdulahi finnskur U21 árs leikmaður. Hann gæti spilað æfingaleik með liðinu gegn Fjölni næstkomandi þriðjudag.

Heimild: Víkingur.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.