Sesar Örn Harðarson er genginn í raðir ÍBV en hann kemur frá grönnunum í Selfossi.
Sesar er 19 ára sóknarmaður sem skrifar undir tveggja ára samning við ÍBV.
ÍBV endaði í 9. sæti Bestu deildarinnar á tímabilinu en Selfoss endaði í 11. sæti Lengjudeildarinnar og féll niður í 2. deild.

Tilkynning ÍBV
Hann kemur til með að auka breidd liðsins fram á við á komandi leiktíð.
Hann lék í 13 leikjum Selfoss af þeim 22 sem liðið spilaði í Lengjudeildinni í ár og skoraði eitt mark. Hann lék 3 leiki með U17 ára landsliði Íslands árið 2023 og lék 2 leiki með U19 ára liðinu í fyrra.
„Sesar er efnilegur sóknarleikmaður sem getur búið til hluti upp á eigin spýtur, ég er virkilega spenntur að byrja að vinna með honum,“ sagði Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV, um leikmanninn.
Athugasemdir