Fotbolti.net
22.01.11 - 11:43
Ívan Guðjón Baldursson

Mido farinn heim til Egyptalands (Staðfest)

Mido farinn heim til Egyptalands (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Mido, fyrrverandi sóknarmaður Tottenham og Middlesbrough, er genginn til liðs við Zamalek í heimalandi sínu og kveðst ætla að klára knattspyrnuferil sinn með félaginu.

Mido er 27 ár gamall og hóf feril sinn sem leikmaður Zamalek áður en hann fór að spila með Gent í Belgíu og síðar til Ajax. Eftir dvöl sína hjá Ajax lékk hann með Marseille, Roma, Wigan og West Ham ásamt því að hafa spilað með, eins og fyrr sagði, Middlesbrough og Tottenham.
,,Ég ætla að klára ferilinn minn hér,\" sagði Mido við egypsku vefsíðuna yallakora.com.

,,Eina markmið mitt er að hætta atvinnumennsku hér. Það er kominn tími til að snúa aftur heim. Ég er hér til að vinna titla með félaginu.\"

Heimild: FIFA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.