22.01.11 - 17:49
Ívan Guðjón Baldursson
Miller kominn til QPR (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Efsta lið Championship deildarinnar á Englandi, Queens Park Rangers, er búið að fá til sín Ishmael Miller, sóknarmann West Bromwich Albion, að láni.
Miller er 23 ára gamall og spilar með QPR út tímabilið en þetta er staðfest stuttu eftir komu Wayne Routledge og Pascal Chimbonda til félagsins.

,,Ishmael er leikmaður sem mig hefur lengi langað til að vinna með,\" sagði Neil Warnock, knattspyrnustjóri QPR.
,,Hann var í liði West Brom sem komst upp í Úrvalsdeildina í fyrra og hann hefur því reynsluna. Hann gefur okkur eitthvað sem við höfum ekki því Jamie Mackie er meiddur út tímabilið og Patrick Agyemang mun einnig vera frá í einhvern tíma.\"
,,Ishmael hefur svakalegan hraða og við erum ánægðir með að hann sé kominn.\"
Þetta hefur í för með sér aukna samkeppni meðal sóknarmanna liðsins en Heiðar Helguson hefur verið að spila vel í framlínu QPR á tímabilinu.

Heimild: Sporting Life

Mynd: Getty Images