Fotbolti.net
22.01.11 - 22:39
Hafliði Breiðfjörð

Jón Daði Böðvarsson til AGF á láni (Staðfest)

Jón Daði í leik með Selfoss í sumar.

Jón Daði í leik með Selfoss í sumar.

Canon

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Jón Daði Böðvarsson leikmaður Selfoss er genginn til liðs við AGF í Danmörku á láni næstu mánuðina en þetta kom fram á fréttavefnum Sunnlenska.is.
Hann mun fara utan á morgun en hann kláraði fyrst í dag að framlengja samning sinn við Selfoss til ársins 2014.

AGF á í harðri baráttu um að tryggja sér sæti í efstu deild í Danmörku og fær Jón Daða til að hjálpa sér í þeirri baráttu.

Jón Daði mun að öllum líkindum vera hjá AGF fram í apríl og kemur þá aftur á Selfoss og mun spila með liðinu í 1. deildinni í sumar. Ef AGF líst vel á Jón Daða og hafa áhuga á að fá hann keyptan þá yrði það eftir keppnistímabilið í haust.

Jón Daði, sem er 18 ára gamall, vakti verðskuldaða athygli í Pepsi-deildinni í sumar þar sem hann lék 21 leik með liðinu og skoraði 3 mörk. Þá hefur hann átt fast sæti í U19 ára landsliði Íslands á árinu og staðið sig vel á þeim vettvangi.

Hjá AGF hittir hann fyrir Aron Jóhannsson sem félagið keypti frá Fjölni í sumar.

Heimild: Sunnlenska.i

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.