Fotbolti.net
22.02.11 - 15:09
Hafliði Breiðfjörð

Ingólfur Sigurðsson í KR (Staðfest)

Ingólfur Sigurðsson er orðinn leikmaður KR að nýju.

Ingólfur Sigurðsson er orðinn leikmaður KR að nýju.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Ingólfur Sigurðsson er genginn í raðir KR að nýju frá Heerenveen í Hollandi en þetta var staðfest á vef félagsins rétt í þessu.

Hann semur við félagið út komandi tímabil með möguleika á framlenginu.
Ingólfur kom upphaflega til KR árið 2008 þegar hann var á yngra árinu í 3. flokki.

Árið eftir lék hann með mfl. í fyrsta sinn en fór á miðju sumri 2010 til hollenska félagsins Heerenveen. Ingólfur skoraði fimm mörk í 16 leikjum með mfl. KR.

,,Það er ánægjulegt fyrir KR-inga að Ingólfur hafi ákveðið að ganga til liðs við félagið að nýju og bjóðum við hann velkominn. Hann þekkir vel aðstæður hér, leikmenn og þjálfara og vann strax hylli stuðningsmanna KR eftir að hann hóf að spila með meistaraflokki,\" sagði á vef KR í dag.

Ingólfur Sigurðsson fór upp yngri flokkana hjá Val en fór aðeins 14 ára gamall til Heerenveen þar sem hann var í eitt ár en sneri aftur heim eftir að starfsleyfi foreldra hans rann út.

Hann byrjaði þá með Val en skipti fljótlega í raðir KR sumarið 2008 þar sem hann var þar til í fyrra er hann fór til Heerenveen.

Hann fékk samningi sínum hjá hollenska félaginu svo rift fyrr í mánuðinum og var í fyrstu orðaður við Val sem hafði reynt að fá hann á láni frá Heerenveen. Það gekk ekki upp og nú er hann kominn aftur í KR.

Heimild: KR.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.