Fotbolti.net
22.02.11 - 18:13
Magnús Már Einarsson

Þorsteinn Þorsteinsson í Reyni Sandgerði (Staðfest)

Þorsteinn Þorsteinsson í Reyni Sandgerði (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Reynir Sandgerði hefur fengið Þorstein Þorsteinsson á láni frá Keflavík.
Þorsteinn hefur undanfarið þrjú tímabil verið á láni hjá Víði Garði.

Í fyrra lék hann alla leiki Víðis í annarri deildinni og skoraði sjö mörk en það dugði ekki til að hjálpa liðinu að bjarga sér frá falli.

Þorsteinn mun núna leika með nágrönnum Víðis í Reyni í annarri deildinni í sumar.

Þessi 22 ára gamli leikmaður getur leikið bæði á kantinum og frammi en bróðir hans er Magnús Sverrir Þorsteinsson framherji Keflvíkinga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.