22.03.11 - 12:19
Magnús Már Einarsson
Christoph Daum tekur við Frankfurt (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Þýska félagið Eintracht Frankfurt ákvað í dag að reka þjálfara sinn Michael Skibbe og ráða Christoph Daum í hans stað.
Frankfurt er í fjórtánda sæti, þremur stigum frá falli en liðinu hefur gengið afar illa eftir áramót þar sem einungis einn sigur hefur komið í hús.
Daum stýrði síðast Fenerbahce í Tyrklandi en hann var einnig þjálfari Köln í Þýskalandi frá 2006-2009.
Daum hefur víða komið við á þjálfarferli sínum en hann missti af því að verða landsliðsþjálfari Þýskalands árið 2000 eftir að upp komst um kókaínneyslu hans.
Fyrsti leikur Frankfurt undir stjórn Daum verður gegn Felix Magath og lærisveinum hans í Wolfsburg eftir landsleikjahléið.

Heimild: Reuters