Fotbolti.net
22.11.10 - 17:22
Magnús Már Einarsson

Henri Lansbury til Norwich á láni (Staðfest)

Henri Lansbury til Norwich á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Norwich hefur fengið Henri Lansbury miðjumann Arsenal á láni næstu 28 dagana.
Lansbury, sem er tvítugur, skoraði fimm mörk í 34 leikjum þegar hann var í láni hjá Norwich á síðasta tímabili.

Hann mun núna hjálpa Norwich næstu vikurnar en margir miðjumenn liðsins eru frá keppni vegna meiðsla.

,,Ég er ánægður með að Arsenal hafi leyft Henri að koma hingað,\" sagði Paul Lambert stjóri Norwich.

,,Við höfum lent í meiðslum og miðjan er ein af þeim stöðum sem við þurfum styrkingu á. Henri gefur okkur fleiri möguleika þar og það er mikilvægt.\"

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.