Fotbolti.net
22.11.10 - 17:34
Hafliði Breiðfjörð

Ásgeir Aron Ásgeirsson í HK (Staðfest)

Ásgeir Aron Ásgeirsson.

Ásgeir Aron Ásgeirsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásgeir Aron Ásgeirsson er genginn í raðir HK frá ÍBV en Kópavogsfélagið staðfesti þetta í tilkynningu rétt í þessu. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið.
Ásgeir Aron Ásgeirsson er sonur Ásgeirs Sigurvinssonar fyrrverandi landsliðsþjálfara Íslands.

Hann gekk til liðs við ÍBV frá Fjölni fyrir ári síðan en hann hafði verið hjá Fjölni allan sinn meistaraflokksferil fram að því.

Hann er 24 ára gamall og hefur ýmist leikið sem miðvörður eða miðjumaður undanfarin ár.

Hann spilaði í heildina 15 leiki í deild og bikar með ÍBV í sumar en átti aldrei fast byrjunarliðssæti.

Ásgeir Aron hóf meistaraflokksferil sinn árið 2006 er hann lék 17 leiki í 1. deildinni með Fjölni auk eins bikarleiks og skoraði í þeim eitt mark. Þá var hann á láni hjá félaginu frá KR en í kjölfarið gerði hann endanleg félagaskipti.

HK leikur í 1. deildinni þar sem liðið endaði í 8. sæti á síðustu leiktíð. Tómas Ingi Tómasson þjálfar liðið.

,,Við erum mjög ánægðir að fá Ásgeir til liðs við okkur. Hann er mjög sterkur og reyndur leikmaður sem mun styrkja lið okkar verulega í baráttunni á komandi leiktíð,\" sagði Tómas Ingi í tilkynningu HK.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.