22.12.10 - 15:01
Magnús Már Einarsson
Steve Kean stýrir Blackburn út tímabilið (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Steve Kean mun halda áfram sem knattspyrnustjóri Blackburn Rovers út tímabilið en félagið staðfesti þetta í dag.
Kean var ráðinn tímabundið sem stjóri eftir að indversku eigendurnir hjá Blackburn ákváðu að reka Sam Allardyce í síðustu viku.
Kean var áður í þjálfaraliði Blackburn en hann hefur unnið hjá félaginu síðan árið 2009.
Um síðustu helgi stýrði Kean liði Blackburn í 1-1 jafnteflinu gegn West Ham.
Hann mun nú halda áfram út tímabilið en næsti leikur Blackburn er gegn Stoke á Ewood Park næstkomandi sunnudag.

Heimild: BBC